18. maí 2007

Svart og hvítt

Síðustu tvær kvikmyndir sem ég hef séð hafa gjörsamlega verið eins og svart og hvítt, sjaldan hef ég upplifað jafn gífurlegan mun á kvikmyndaupplifun.

Fyrst sá ég myndina Children of Men um daginn og þvílík upplifun, þvílíkt meistaraverk. Eftir langt þurrkatímabil yfir sjónvarpinu og í kvikmyndahúsum endurreisti þessi mynd trú mína að ennþá er hægt að gera góðar kvikmyndir, alvöru kvikmyndir.
Þessi mynd hafði allt, sögusviðið frábært, handritið frábært, leikararnir stóðu sig mjög vel, en það var leikstjórnin og kvikmyndatakan setti þessa mynd gjörsamlega upp á annan stall en flestar myndir. Ég horfði á myndina aftur daginn eftir....það gerist nánast aldrei fyrir mig, ég held að ég þurfi ekki að segja meira.

Bara gerið það fyrir mig og sjáið þessa mynd.

Seinni myndin sem ég sá var í kvöld í bíó. Það var Spiderman 3. Sjaldan hef ég séð eins mikla bandaríska klisju og þvælu. Eini ljósi punkturinn í myndinni voru tæknibrellurnar og hasaratriðin sem voru mjög vel gerð. En allt annað liggur á botni kvikmyndabrunnsins. Handritið var jafn þunnt og frumuhimna, leikararnir voru langt frá sínu besta...eða kannski var þetta bara þeirra besta. Leikstjórn og kvikmyndataka í lágmarki og til að setja síðustu kúlunna inn í hausinn á mér þá var hver mínúta troðfull af ekta bandarískri klisju og þvælu sem gerði það að verkum að ég ældi næstum því þegar myndir var hálfnuð. (Auðvitað hafa þeir risastóran bandarískan fána blaktandi í bakgrunninum þegar spiderman stekkur óhræddur í lokabardagann til að sigrast á vonda kallinum og bjarga dömunni....það gerist ekki mikið þynnra né klisjulegra en þetta)

Nú verður fólkið þarna í Hollywood aðeins að taka sig á því að ef þetta er framtíðin í kvikmyndagerð þarna vestan hafs þá er framtíðin ekki björt hjá þeim.

Og hvað með almenningin þarna í BNA? Þarf ekki að gera betur en þetta? Gerir fólk engar kröfur þegar það fer í kvikmyndahús? Er þeim alveg sama eða er þetta bara það sem það vill? Er fólkið svona eins og hestar með svona leppa fyrir augunum svo að þeir sjái ekki út undan sér...eða er það bara svona heimskt?

Hvað finnst ykkur sem lesa þetta? Er ég með svona skrýtinn smekk eða eru einhver sannleikskorn í þessu hjá mér.

Hver sú besta og versta kvikmynd sem þið hafið séð nýlega? Allra tíma?

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta var sko alveg TOPP rómantíkst kvöld hjá okkur Óskari...því það var ekki annað hægt en að hella smá eðal bjór í kallinn eftir svona karla-vælumyndar disaster til að lemja smá karlmensku í hann eftir þessa misnotkun...en það tókst ekki betur en svo að þegar við loksins vorum búin að koma okkur fyrir á ágætist bar með eðal bjór í hönd, kemur í ljós að þar er karaoke kvöld og er það er engin annar en þroskaheft kona sem stýgur fyrst á svið og tekur lagið ,,like a virgin"...úfff úff og æjæjæj...Óskar við höldum okkur bara innandyra næst...

Frúin...

Nafnlaus sagði...

úff uff þetta hefur ekki verið gaman en óskar ekki bjóstu við einhverju meiru af spiderman 3 en því sem þú lýstir????
hef ekki séð children of men en á hana svo kannski spurn um að skella sér í hana
ég sá góða mynd um daginn the snowwalker gæti verið eitthvað f þig og fyrir hildi sá ég the sisterhood of the traveling pants hehe kom verulega á óvart bandarísk en samt góð
svo veistu hvaða mynd er must to see... ég gef smá vísbendingu það eru sjóræningjar og johnny deep er alltaf fallegur ;)
Ingibjörg

Jóel K Jóelsson sagði...

Ég er sammála með Children of Men. Ein besta mynd sem ég hef séð lengi. Og góðar pælingar í henni.

Nafnlaus sagði...

300 spartans !!!!!! Langsamlega flottasta mynd í geimi.... aldrei séð jafn ógeðslega flotta mynd, þráðurinn ekkert spes, en litirnir, anatómian, tónlistin, hreyfitæknin, glamúrinn, búningarnir, leikurinn og já ALLT.... konfekt í augun fyrir svona pjásur eins og mig !!!! slefan !!!

Óskar sagði...

Haha...nú er komið að okkur strákunum að fá myndina 600, þar sem fallegar og fáklæddar amazon stríðskonur berjast gegn ofurefli...eða það finnst mér amk :)

Nafnlaus sagði...

Heyrðu, ég er bara í losti maður... við hjúin tókum mannbörnin og já fannst hún sæmileg.... ekkert neitt sérstök, ekkert spes.... svo tókum við mynd með gamla john travolta og sölmu hayek, jared leto og james gandolfini ... lonely hearts killers..... og hún var barasta helvíti góð...... en já svona er nú misjafn smekkur mann ;) en mæli með þeirri síðar nefndu.... topp leikarar, fyrirsjánlega en samt svo klikkuð !!! slefan