Við skelltum okkur til London (ég, Hildur og Guðný)! Það var alveg frábær ferð og við fengum frábæra aðstöðu hjá Heiði og Jóa ásamt ótrúlega góðri leiðsögn út um allt, takk kærlega fyrir okkur...betra seint en aldrei ekki satt :) Það var rosalega gaman að koma til London, við tókum góðan ferðamannapakka á þetta, London Eye, London Aquarium, Lion King söngleikinn, pöbbarölt, trúristarölt hjá Big Ben, Camden Town, Tower Bridge, Tower of London, London Wall svona þannig að það helsta sé nefnt. Einnig vorum við orðin sérfræðingar í neðanjarðarlestakerfinu og vorum við byrjuð að "fljúga" á milli staða undir lokin.
Næsta á dagskrá er árshátíð íslenskra læknanema í Danmörku í Odense næstu helgi:)
2 ummæli:
hey hvar er flatfiskurinn!!!????!!!?
ingibjörg
Hæ! Eru þið á leiðinni til Odense í dag? Er fært að fara? Það er allt stopp hérna upp í ghettóinu..enginn strætó! Ef þetta verður ennþá svona á morgun..þá veit ég ekki hvort ég komist yfir höfuð til Odense :(
Skrifa ummæli