24. mar. 2007

Stafagláp og heilatroðsla

Þannig er líf mitt þessa daganna. Stafur eftir staf, orð eftir orð, setning eftir setningu, blaðsíða eftir blaðsíðu, kafla eftir kafla, bækur eftir bækur.

Ég man góðu dagana í FB. Ég var duglegur að mæta í tíma, læra og gera heimaverkefni og fyrir próf þá tók ég upp bækurnar kvöldið fyrir próf, las fram eftir nóttu, svaf 2-4 tíma og fékk góðar einkunnir...allir ánægðir, ekkert stress.
Ég hafði tíma fyrir að æfa af fullum krafti og sinna öllum félagslegum þörfum...ég sakna þeirra tíma.

Nú eru þeir dagar farnir. Ég tek upp bækurnar 2 mánuðum fyrir próf, les fram eftir nóttu alla daga og hugsa um ekkert annað...en samt krossa ég fingurna nóttina fyrir próf og vona að ég nái prófinu, enga svaka einkunn, bara ná, svo að ég þurfi ekki að gera þetta aftur.

Í grunnskóla vöruðu kennararnir okkur við framhaldsskóla. Í framhaldsskóla vöruðu kennararnir okkur við háskóla.
Það er ekki ennþá búið að vara mig við í háskóla...ég veit ekki hvort það sé gott eða slæmt.

Fyndið að hugsa út í hvernig hlutir breytast eftir því úr hvaða sjónarhorni maður tekur eftir þeim.

.....................................................

Blogga ég svona í hverri próftíð? Ég var að lesa þetta...hljómar eins og erfðaskrá, eins og minn síðasti viskumoli til alheimsins og næstu kynslóðar. Mikið svakalega verður maður djúpur á þessum tímum.

En ef maður verður of djúpur þá getur maður tapast.....djúúúpt Óskar!

En ég veit að ég hlakka til að komast heim, ég er ekki búinn að koma heim til Íslands í næstum 8 mánuði...það verður gott að koma heim í kuldann og finna lyktina af ferska loftinu og drekka vatnið.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhhh... hvað það er gott að vera bara heilalaus þessa stundina!

á samt eftir að öfunda þig hrikalega, þú hr. djúpþenkjandi maður að þessu loknu!!

Gangi þér vel ;)

Nafnlaus sagði...

Já ekki spurning UPP með djúpu gullorðabókinni...þú átt klárlega alltaf þín bestu komment undir pressu:)

Endalaust dekur frá mér skat...

Hildúa

...ohh talandi um sumarið, þessa stundina þrái ég mest grill, einn kaldan í bústað ohohohoh goooott!

Nafnlaus sagði...

haldetta út.... haldetta út....haldetta út..... og svo eretta búið.... klikkaðar lestrakveðjur frá konunnunni sem á bara 1 og hálft semester eftir (vonandi) og verður KREISÍ á næstu önn ;)

Unknown sagði...

Mmmm, grillmatur... vatnið...bústaður... potturinn..... Ég öfunda þig nú bara Óskar, það styttist í dásemdirnar. Ég fæ ekki íslenskt sumar fyrr en 2008 og ég er hreint ekki sátt við það.

Góða skemmtun í Köben um páskana og svo sjáumst við á flugvellinum í águst!

Nafnlaus sagði...

Ég heiti Óskar ég er ógeðslegur. OJ