15. jún. 2007

Glæpamaðurinn Óskar

Já það er rétt, ég var tekinn í tollinum síðustu helgi á leið inn í landið með heila danska spægipylsu handa mömmu minni...og það var sko ekkert grín þar á bæ.
Já þetta var alveg háalvarlegt mál og gróft brot á íslenskum lögum, fékk að heyra setningar eins og "Veistu hvað þú ert með í töskunni?" (með alvarlegri röddu talað niður til mín) á meðan hann dró mig inn og bað mig að opna töskuna.
Já spægipylsan hirt og sekt upp á 600 kr skellt á mig! Á tímabili hélt ég að ég væri í sjónvarpinu að gera grín í mér en það var sko ekkert grín.
En jæja þetta var nú bara 600 kall og skiptir kannski ekki svo miklu máli...vildi bara að það væri hægt að koma betur fram við mann og meira á kurteisisnótunum í staðinn að tala við mann eins og maður er að flytja fíkniefni inn í landið. Þetta var næstum því þess virði að fá að upplifa svona grínþátt.
Hasarinn byrjaði strax á mánudaginn þegar ég byrjaði að vinna á hjúkrunarheimili. Á fyrstu 2 dögunum snérust augun í mér eftir að hafa reynt að muna yfir 40 nöfn og alla helgisiði og sérþarfir sem allir vistfólkið hefur. Þetta er allt saman að koma smá samam og ég hlakka bara til sumarsins.
Annars er ekki mikið af segja nema ég hlakka til að sjá alla í sumar.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

...ég reyni svo við pylsu númer 2 þann 29-nda:)...sjáum hvað sólarbrosið mitt nær langt!:)

hildúa

Nafnlaus sagði...

hahahahahahahahaha okei ég sá ekkert nema perralegt við þetta.. samt ekki , æji ég veit ekki ...
bara snilld

Unknown sagði...

Að þú skulir vera svo forhertur að halda að það sé í lagi að flytja danska spægipylsu til landsins!??! Veistu hvað þetta er að gera við unga fólkið okkar? Allt að fara í hundana. Á Íslandi skal bara etið SS pylsur annars verður allt vitlaust!

Nafnlaus sagði...

gavuð..... ég hefði þá þokkalega verið handtekin og fengið rektal exploration á sínum tíma, þegar ég þreytt og þunnhærð fór í gegnum tollinn eftir roskildefesteval 99 !! frekar þreytt og ekki með húmorinn uppi..... var spurð að því hvað þessar stangir væru sem ég var með ( en það voru plakköt) og ég sagði að þetta væru #O%%#U&......... það var starið í augun á mér og tollverðinum þótti ég alls ekki fyndin.... sem ég var nú reyndar ekki... en mér var bara sparkað inn í landið.... gvuð, ef þú ert böstaður með spægipylsu þá hefði ég pottþétt verið hevý böstuð með plakkötin mín ;) hafðu það beztast.... eva eftir sig eftir prófin og öfur eirðarlaus !!

Nafnlaus sagði...

hlakka til ad sjá þig líka! og hahahahahahahaha