18. okt. 2005

Já nú eru jólin

Ég frétti það í dag að það er byrjað að hengja jólaskraut upp í miðbænum. Hvað er að eiginlega að gerast, október er rétt svo hálfnaður! Þetta er alltof snemmt fyrir jólaskraut...ég hreinlega neita að stíga fæti í miðbæinn fyrr en í byrjun desember!
En yfir í annað, nú geta mannfræðiathuganir mínar haldið áfram. Ástæðan er sú að næstu fimm dagana mun Þjóðverji (vinkona Hildar) dvelja hjá okkur. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem ég hitti Þjóðverja og munu næstu dagar gefa mér næg tækifæri fyrir rannsóknir mínar. Það sem ég veit um Þjóðverja er að:
  • Þeir eru bestu bílstjórar í heimi.
  • Hafa autoban þar sem er engin hraðatakmörk.
  • Þeir eru nískastir í heimi.
  • Maður má ekki minnast á Seinni Heimstyrjöld eða Hitler við þá.
  • Framleiða góða bjóra.
  • Eru með gott fótboltalið og eru með hörku íþróttamenn á mörgum sviðum (þýsku kerlingarnar í kúluvarpi eru svakalegar! Aðeins rússnesku Olgurnar geta skákað við þeim.)
  • Þýskar konur eru helvíti loðugar (ég mun samt ekki reyna að sannreyna þessa staðreynd núna)
  • Rammstein.
  • Dubba allt erlent sjónvarpsefni.
  • Einstein.

Man ekki fleira í augnablikinu, endilega látið mig vita ef það er eitthvað fleira við þjóðverja ;)

4 ummæli:

Sævar sagði...

Ég bíð spenntur eftir frekar fregnum að týskararnum.. :)

kveðja

Nafnlaus sagði...

Óskar, ég var ekki að meina neitt neikvændi þegar ég var að skrifa comment áðan, þú veist það er það ekki? Mér finnst líka að þjóðverja strákir eiga Bundesliga hár.

Hvernig gékk með www.zombo.com?

Allan

xxx sagði...

Tjah.. veit ekki afhverju en tegar eg hugsa um tjodverja..se eg fyrir mer asnalegar klippingar. Ta helst a karlmønnum.

Óskar sagði...

Já ekkert mál Allan...en ég veit ekki alveg hvað á að segja um Zombo.com :/