11. okt. 2005

Nú er illt í efni

Já góðir hálsar, í gær kom Hildur heim með eitt stykki gítar heim.
Og þar sem hún kann ekkert á þetta hljóðfæri þýðir það bara eitt fyrir mig. Endalaust gítarglamur og falskar nótur næstu mánuðina.
Kannski verð ég meira uppí skóla en ég hef verið undanfarið...
En ég fæ nú vonandi að hlusta á fagra tóna í staðinn þegar ég er orðinn gamall kall sitjandi í hægindastólnum mínum ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HEYYYYYYY MAN! það tekur mig i mesta lagi eina helgi að verða snillingur!!!!! Bíddu bara!!

Virðingafyllst
HIldur Ingadóttir!

Nafnlaus sagði...

Hehe líst vel á hana Hildi....alltaf gaman ad gitarspili i godu partyi;) Kv.Gudny

Unknown sagði...

Þetta er allt í lagi Óskar, fékkstu ekki jólasteik í staðinn?? Múahahahaha