28. mar. 2005

Málshátturinn þetta árið

"Þann er gott að fræða sem sjálfur vill læra"
Þessi málsháttur kom mér skemmtilega á óvart þar sem ég var búinn að læra allan daginn og var alveg búinn á því. Hann kom á hárréttum tíma og virkaði sem góð hvatning. Spurning um hvort þetta hafi bara verið ótrúleg tilviljun eða hvort mamma hafi valið málsháttin sérstaklega áður en hún sendi mér páskaeggið?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er allt með ráðum gert Skari minn.

Óskar sagði...

Já ég held það líka Andrés.

Takk mamma!