24. apr. 2005

Stjörnuhrap!

Já það nýjasta nýtt í innbúinu okkar hérna í Danmörku er ekkert annað en Sing Star Party! Nú hristum við Hildur reglulega loftið hjá Claus nágranna á neðri hæðinni með hreint út sagt ótrúlegum töktum, við tökum við miðapöntunum frá og með næsta mánudegi.
Einnig skelltum við okkur í alvöru circus um helgina og ekki var hann af verri kantinum. Circus Arena er nemlig Nordens storste circus. Alveg var það frábær upplifun, trúðar, fílar, hestar, fimleikar og allt sem circus getur boðið uppá.
Annars er þessi Sing Star leikur eitthvað að fara í mig, ég er einfaldlega svo ótrúlega lélegur að Hildur vinnur mig alltaf! Eða ég ætti að segja nánast alltaf því að það undur og stórmerki gerðist áðan í ótrúlega harðri keppni á milli okkar.......................ég vann!
Ég á eftir að lifa á þessu út næsta mánuð, því að ekki á þetta eftir að gerast aftur í bráð.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

JÁÁ madur! Thu varst ekki lengi ad snúa vörn i sókn!!! ...hmmmm thetta er eitthvad med stráka og tölvuleiki held ég!!:)

Óskar sagði...

Usssss, thetta er bara afsokun hja ther Hildur.