Okay, gaurinn ætlar að setja heimsmet í að brjóta kókoshnetur með hendinni á sér en það gengur ekki alveg einsog hann hafði hugsað það. Þetta er klassík.
11. okt. 2008
27. sep. 2008
26. jún. 2008
23. jún. 2008
Home sweet home
Soldið tættur eftir prófin en nú er ég á leiðinni heim. Kem heim á miðvikudaginn, újéé!
21. jún. 2008
16. jún. 2008
8. jún. 2008
4. jún. 2008
2 spurningar
- Af hverju þegar maður er að fletta í textavarpinu, byrjar leitin ótrúlega oft á tölu rétt á eftir þeirri síðu sem maður hefur áhuga á og verður að bíða eftir að kerfið keyrir heila andskotans hring?
- Af hverju heldur sumt fólk að maður þurfi að tala mun hærra í síma en maður gerir venjulega til þess að manneskjan í símanum heyrir í manni?
1. jún. 2008
Hot hot hot
Of mikill hiti er ekki fyrir mig...ég er Íslendingur og þoli ekki mikinn hita.
Í dag er búið að vera svo heitt að:
Það boðar nú ekki góða hluti þar sem próflestur er að byrja. Hlakka ekki til að sitja í svitapolli yfir bókunum og reyna einbeita mér.
Ég get eingöngu hlakkað til að koma heim í sumar til Íslands þar sem það er líft fyrir manneskju eins og mig.
Í dag er búið að vera svo heitt að:
- Allir gluggar eru búnir að vera opnir í allan dag.
- Frá klukkan 15-18 var ég eingöngu í nærbuxum vegna hita.
- Reyndi ýmsar aðferðir til að reyna kæla íbúðina, m.a. að hafa viftuna fyrir ofan eldavélina í gangi.
- Var næstum búinn að hafa ískápinn opinn til að kæla loftin niður.
- Klukkan er nú að verða eitt eftir miðnætti og allir gluggar eru ennþá opnir. Virkar ekki.
Það boðar nú ekki góða hluti þar sem próflestur er að byrja. Hlakka ekki til að sitja í svitapolli yfir bókunum og reyna einbeita mér.
Ég get eingöngu hlakkað til að koma heim í sumar til Íslands þar sem það er líft fyrir manneskju eins og mig.
28. maí 2008
Svangur?
Ég mætti manni áðan á leiðinni út í búð og ég held að hann var sárasvangur!
Hann var rétt svo kominn 10 m út úr búðinni og hann var búinn að rífa upp pylsupakka og var svoleiðis að sporðrenna einni pylsu. Kæmi mér ekki á óvart þótt fleiri fengu að fara sömu leið á leiðinni heim.
Hversu svangur þarf maður eiginlega að vera hugsaði ég.

26. maí 2008
EM-leikur Leiknis
Vil minna fólk á hinn frábæra EM-leik Leiknis.
Þetta er mjög einfaldur en um senn mjög skemmtilegur leikur. Þetta er einfaldlega eitt excel skjal sem er hlaðið niður sem er búið að setja upp fyrir þig á allan hátt.
Það eina sem maður þarf að gera er að fylla út úrslitin sem maður spáir fyrir og skjalið gerir rest. Það setur upp lokaniðurstöðu í riðlunum og hvaða lið komast áfram í úrslit þar sem maður heldur áfram að spá. Þannig gengur þetta alveg fram að úrslitaleik.
Gefin eru stig bæði fyrir að giska á rétt úrslit, rétta markatölu og fyrir hvert lið sem kemst áfram í úrslit.
Mæli með því að allir sæki skjalið og geri sína eigin spá. Ef fólk vill ekki taka þátt hjá Leikni þá er skemmtileg hugmynd að skora á vinina í keppni eða bara halda keppni við sjálfan sig. Ég minni samt nú á að stærsti potturinn er hjá Leikni, þannig að ef maður heldur að sú spá sem maður er kominn með muni rætast þá er ekki spurning um að taka þátt.
Skjalið er hægt að sækja hér:
http://leiknir.com/default.asp?op=frettir&sop=einfrett&frett=3635

24. maí 2008
20. maí 2008
Vanhæfir
Mér finnst ótrúlegt að vera búinn að fylgjast með í fréttum hvernig "stjórnvöld" í Búrma (ég segi Búrma viljandi) eru búin að bregðast við eftir fellibylinn fyrir ca. tveimur vikum. Sérstaklega hvernig þeir bregðast við alþjóðlegri aðstoð.
Maður getur ekki annað en að finna fyrir reiði og skilningarleysi þegar maður sér hvernig þeir neita lífsnauðsynlegri aðstoð fyrir milljónir dag eftir dag útaf pólitískum ástæðum.
Ég veit ekki einu sinni hvað á að skrifa meira um þetta.

15. maí 2008
Verkleg microbiologi framhald
Sýnin komin úr ræktun og búið að skoða þær vel og lengi, lita og sett undir smásjá.
Það var tvennt sem mér fannst fyndið í tímanum í dag.
Það fyrsta var að endaþarms-strokusýnin sem flestar stelpurnar tóku komu út eins og venjulegt húðstrokusýni, ekki af því að þeirra afturendi er svona tandurhreinn, heldur útaf því að stelpugreyin voru eitthvað feimnar við að taka almennilegt sýni. Litlu teprurnar, þar var nú lagt mikið á þær í gær. En strákarnir voru greinilega ekkert að hika í sýnistökunum og komu þau sýni mjög vel út :)
Það seinna var að það uppgvötaðist E. Coli bakteríur (saurgerlar) í nasastroku hjá einum stráknum. Hann varð eins og epli í framan og sór að hann hafði tekið þetta sýni áður en hann tók endaþarmssýnið. En kennarinn hló eftir smá stund (samt nógu langa til að pína aumingja strákinn aðeins) og sagði að þetta kæmi ekkert á óvart og að hann þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af þessu. Þessar bakteríur geta lifað á ótrúlegustu stöðum og fólk er með mismunandi örveruflóru.
Því miður Eva þá komu ekki upp nein klamidíutilfelli í dag...enda er chlamydia intracellulært parasit og er ekki hægt að rækta á agarplötum, varstu nokkuð búin að gleyma því hurrhurr ;)

13. maí 2008
Setning vikunar
"Já og að lokum þarf einn úr hverjum hóp að taka strokusýni úr endaþarmi (sínum eigin) sem við skoðum síðan á morgun, eftir að hafa verið í ræktun yfir nóttina".
-Kennari í verklegri microbiologi.
-Kennari í verklegri microbiologi.
7. maí 2008
Sól og blíða
Alltaf gaman á vorin hérna úti þegar sumarið er komið...sérstaklega þegar fer að líða á vorið og veðrið verður betra og betra, því þá verður einnig styttra og styttra í próf og því meira maður þarf að hanga inni á loftlausu bókasafni.
20. apr. 2008
5. apr. 2008
2. apr. 2008
Kommuævintýri
Í dag, var hópurinn minn, að fara yfir verkefnið okkar.
Við vorum 3 tíma að athuga málfræðina, og svoleiðis dót.
Af þeim, fóru 2 tímar, eingöngu að leiðrétta kommur,

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)