19. des. 2004

Heimferð

Jæja, þá er allt tilbúið í heimferðina. Nú er búið að gera alla íbúðina hreina og öll óhrein föt eru nú tandurhrein. Á morgun eldsnemma klukkan 6 hefst ferðin okkar í strætó niður á lestarstöð og næstum 10 tímum seinna lendum við á íslenskri fósturjörð.

Ég hlakka til að sjá alla að nýju um jólin.

Ferðakveðjur,

Óskar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góða ferð heim, vonandi að við getum hist eitthvað milli jóla og nýárs:D Kv. Guðný