11. mar. 2008

Frábær hugmynd

Hafið þið einhverntímann spáð í því hvernig fólk myndi bregðast við ef þú myndir allt í einu byrja syngja í strætó eða kveðja alla á leiðinni út? Sjá hvað gerist ef þú ruglar í fólki á einhvern hátt?

Hér er hópur af fólki sem lætur svona hugmyndir verða af veruleika og taka það meira að segja einu skrefinu lengra. Í myndbandinu hér að neðan eru faldar myndavélar í verslunarmiðstöð og 16 "agents" eru á meðal almennings. Og hvað gera þau?

Það brýst út í söngleik!

Frábært hugmynd í alla staði og yndislegt að sjá hvernig fólk bregst við...eitthvað sem ég hef a.m.k. oft hugsað útí.

Þessi hópur hefur gert ca 70 "mission" út um allt og hægt er að sjá fleira með þeim á síðunni þeirra

http://improveverywhere.com/

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohh .. mig hefur alltaf langað að vera einhvers staðar þar sem allir bresta út í svaðalega dansrútínu við eitthvað hresst 80's lag!

Einhvern daginn mun ég láta þetta gerast... get ekki beðið! :)

Óskar sagði...

Haha já er það ekki!

Láttu mig vita hvenær og hvar og ég mæti ;)